Góðgerðarmál
Íslandsbanki styður við fjölmörg góðgerðarfélög í gegnum áheitasöfnun á hlaupastyrkur.is og starfsfólk bankans er hvatt til að rétta góðum málefnum Hjálparhönd á vinnutíma.
Næstu skref
Alls tóku 15.253 hlauparar þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka árið 2016 og söfnuðu hlauparar áheitum á hlaupastyrkur.is til styrktar góðgerðarfélögum um land allt. Samtals söfnuðust 97.3 milljónir. Frá því að áheitasöfnun hófst árið 2006 hafa yfir 500 milljónir safnast til góðgerðarmála.
NánarÍslandsbanki hvetur starfsmenn sína til að leggja sitt af mörkum til góðgerðarmála. Starfsmenn bankans geta varið einum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis og velja sér sjálfir það málefni sem þeir vilja veita liðsinni.
Íslandsbanki styður við bakið á slysavarnafélaginu Landsbjörg sem eru landssamtök björgunarsveita, slysavarna- og kvennadeilda og unglingadeilda á Íslandi. Fyrir félagið starfa þúsundir með það markmiði að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum.
NánarVÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka er einn helsti styrktaraðili Landssambands eldri borgara. Sambandið var stofnað árið árið 1989 og markmið þess er að byggja upp öflug samtök eftirlaunafólks sem gæti réttar aldraðra og vinni að hagsmunamálum þeirra gagnvart stjórnvöldum.
NánarMálaflokkar
Efling atvinnulífs
Íslandsbanki styður við uppbyggingu atvinnulífs og frumkvöðlastarf.
Fræðsla
Íslandsbanki styður við verkefni sem stuðla að fjármálaþekkingu, menntun og fræðslu.
Góðgerðarmál
Íslandsbanki styður við góðgerðarfélög í gegnum áheitasöfnun á hlaupastyrkur.is.
Íþróttir, æskulýðsstarf og forvarnir
Við styðjum íþrótta- og æskulýðsstarf í þágu barna og ungmenna.
Menning og listir
Íslandsbanki styður við menningu og listir í landinu.
Umhverfismál
Við styðjum við verkefni á sviði umhverfismála í gegnum Umhverfissjóð ERGO.