Sveitarfélög
Íslandsbanki skipar teymi sérfræðinga sem einbeitir sér að greiningu á málefnum og fjármálum sveitarfélaga. Starfsfólk Íslandsbanka hefur tekið þátt í fjármögnun ýmissa verkefna á vegum sveitarfélaga á undanförnum árum og skapað sérþekkingu á því sviði.
Íslandsbanki gefur árlega út skýrslu um íslensk sveitarfélög. Skýrslunni er ætlað að gefa gott yfirlit yfir stöðu sveitarfélaga á Íslandi og þróun síðustu ára. Íslandsbanki vonast til að skýrslan nýtist vel sem upplýsingarit um íslensk sveitarfélög, bæði fyrir þá sem starfa innan sveitarstjórnarstigsins og þá sem vilja fræðast um íslensk sveitarfélög.
Skýrslurnar er hægt að sækja í skýrslusafnið okkar.
Sveitarfélagateymið
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?