Efling atvinnulífs
Íslandsbanki styður við uppbyggingu atvinnulífs með sérstakri áherslu á sjálfbærni í sjávarútvegi og endurnýjanlega orkugjafa. Bankinn styður frumkvöðlastarf m.a. í gegnum Frumkvöðlasjóð Íslandsbanka
Næstu skref
Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka hefur frá árinu 2008 styrkt frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlega orku og sjálfbæran sjávarútveg. Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á ofangreindum sviðum.
Íslandsbanki er einn stofnaðila Íslenska ferðaklasans sem stofnaður var árið 2015. Hlutverk félagsins er að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun íslenskrar ferðaþjónustu með skilgreindu verkefnamiðuðu samstarfi.
NánarÍslandsbanki er einn stofnaðila Íslenska jarðvarmaklasans sem stofnaður var árið 2011. Hugmyndafræði samstarfsins gengur út á að sameina krafta ólíkra aðila á skipulögðum samstarfsvettvangi og nýta aflið sem þannig skapast sem drifkraft í nýsköpun og þróun.
Íslandsbanki hefur frá stofnun Íslenska sjávarklasans verið einn af aðal styrktaraðilum hans. Íslenski sjávarklasinn er drifkraftur nýrra hugmynda og stuðlar að öflugu samstarfi fyrirtækja og frumkvöðla í sjávarútvegi og haftengdri starfsemi.
NánarÍslandsbanki hefur verið aðalstyrktaraðili Félags kvenna atvinnulífinu frá árinu 2010. Félagið var stofnað árið 1999 með það að leiðarljósi að tengja saman kvenstjórnendur og kvenleiðtoga í atvinnulífinu, efla samstarf og sýnileika þeirra í viðskiptum og stjórnun innanlands sem og erlendis.
NánarÍslandsbanki er aðalbakhjarl félags Kvenna í sjávarútvegi. Félagið hefur verið starfandi frá árinu 2013 og markmið félagsins er að styrkja og efla konur í sjávarútvegi ásamt því að gera þær sýnilegri innan iðnaðarins sem og utan hans.
NánarMálaflokkar
Efling atvinnulífs
Íslandsbanki styður við uppbyggingu atvinnulífs og frumkvöðlastarf.
Fræðsla
Íslandsbanki styður við verkefni sem stuðla að fjármálaþekkingu, menntun og fræðslu.
Góðgerðarmál
Íslandsbanki styður við góðgerðarfélög í gegnum áheitasöfnun á hlaupastyrkur.is.
Íþróttir, æskulýðsstarf og forvarnir
Við styðjum íþrótta- og æskulýðsstarf í þágu barna og ungmenna.
Menning og listir
Íslandsbanki styður við menningu og listir í landinu.
Umhverfismál
Við styðjum við verkefni á sviði umhverfismála í gegnum Umhverfissjóð ERGO.