IS Einkasafn B

Ráðlagður fjárfestingartími: 3 ár+

Fyrir hvern?

Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjú ár eða lengur og fá góða eignadreifingu á milli skuldabréfa og hlutabréfa. Hámarksvægi hlutabréfa er 15%. Sjá hér útskýringu á Flokki A og Flokki B.

Helstu kostir

  • Virk stýring og eignadreifing milli skuldabréfa og hlutabréfa
  • Sérfræðingar vakta tækifæri á markaði
  • Sveigjanleg fjárfestingarstefna
  • Engin binding
  • Skattalegt hagræði

Gengi (fl.A)
1.496,43
1,36 (0,09%)
Gengi (fl.A)15.04.2024
Nafnávöxtun (fl.A)
Verðtryggð skuldabréf
50.3
Óverðtryggð skuldabréf
33.0
Innlend hlutabréf
9.4
Erlend hlutabréf
3.2
Hrávörur  0.0
Innlán
4.1

Eignasafn og stefna

Markmið IS Einkasafns B er annars vegar að verja höfuðstól eigenda og hins vegar að auka verðmæti hans með því að ávaxta fjármuni sjóðsdeildarinnar á virkan hátt í innlendum og erlendum fjármálagerningum. Sjóðsdeildin fjárfestir í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og annarra sérhæfðra sjóða, auk þess að fjárfesta í stökum fjármálagerningum og innlánum í samræmi við fjárfestingastefnu.

Staða 01.04.2024

Gengisþróun

Grunnupplýsingar

Tegund sjóðs
Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta
Stofnár
2015
Grunnmynt
ISK
Lágmarkskaup
kr.  10.000
Lágmarkskaup í áskrift
kr.  5.000
Áhættuvísir
2
Losunarstyrkur (tCO2e/ISKm)
0,52
SFDR flokkun
6. gr.
Rekstraraðili
Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili
Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjóri/ar
Sigurður G. Gíslason

Þóknanir og viðskiptapantanir

Kostnaður við kaup
1,00%
- afsláttur í Netbanka
25%
- afsláttur í áskrift
50%
Árleg umsjónarlaun
fl. A* 1,25% / fl. B* 0,60%
Afgreiðslugjald
kr.  1000
- afsláttur í netbanka
100%
Uppgjörstími
2 viðsk.dagar (T+2)
Viðmiðunartími
kl. 15:00
Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.