IS Einkasafn Erlent (USD)

Ráðlagður fjárfestingartími: 5 ár+

Fyrir hvern?

Sjóðurinn hentar þeim sem vilja fjárfesta á erlendum mörkuðum og horfa til fjárfestinga til fimm ára eða lengur. Sjóðurinn fjárfestir bæði í erlendum hlutabréfum og skuldabréfum. Sjá hér útskýringu á Flokki A og Flokki B.

Helstu kostir

  • Einföld leið til fjárfestinga á erlendum mörkuðum
  • Virk stýring og eignadreifing milli skuldabréfa og hlutabréfa
  • Sérfræðingar vakta tækifæri á markaði
  • Sveigjanleg fjárfestingarstefna
  • Engin binding
  • Skattalegt hagræði

Gengi (fl.A)
14,82
0,01 (0,06%)
Gengi (fl.A)18.04.2024
Nafnávöxtun, í USD
Erlend hlutabréf
93.4
Innlán  6.6
Hrávörur
0.0
Óverðtryggð skuldabréf
0.0

Eignasafn og stefna

Markmið IS Einkasafns Erlent er annars vegar að verja höfuðstól eigenda og hins vegar að auka verðmæti hans með því að ávaxta fjármuni sjóðsdeildarinnar á virkan hátt í erlendum fjármálagerningum. Sjóðsdeildin fjárfestir í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og annarra sérhæfðra sjóða, auk þess að fjárfesta í stökum fjármálagerningum og innlánum í samræmi við fjárfestingastefnu. 

Staða 01.04.2024

Gengisþróun

Grunnupplýsingar

Tegund sjóðs
Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta
Stofnár
2016
Grunnmynt
USD
Lágmarkskaup
USD 100
Lágmarkskaup í áskrift
USD 50
Áhættuvísir
3
SFDR flokkun
6. gr.
Rekstraraðili
Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili
Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjóri/ar
Sigurður G. Gíslason

Þóknanir og viðskiptapantanir

Kostnaður við kaup
1,00%
- afsláttur í Netbanka
25%
- afsláttur í áskrift
50%
Árleg umsjónarlaun
fl. A* 1,25% / fl. B* 0,60%
Afgreiðslugjald
USD 8
Uppgjörstími
3 viðsk.dagar (T+3)
Viðmiðunartími
kl. 15:00
Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.