Skúli Hrafn ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða
Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða.

Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélags Íslandsbanka. Hann hefur starfað við eigna- og sjóðastýringu á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2007.
Skúli Hrafn kemur til Íslandssjóða frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), þar sem hann hefur frá árinu 2022 gegnt starfi sjóðstjóra innlendra verðbréfa hjá stærsta lífeyrissjóði landsins.
Áður starfaði Skúli Hrafn hjá Kviku eignastýringu á árunum 2015 til 2022, þar sem hann leiddi meðal annars hlutabréfastýringu félagsins og var í forsvari fyrir fagfjárfestasjóði. Þar á undan var hann forstöðumaður eigin viðskipta hjá MP banka og hóf feril sinn hjá Saga Capital fjárfestingarbanka árið 2007. Skúli Hrafn hefur jafnframt setið í fjárfestingar- og hagsmunaráðum ýmissa rekstrarfélaga.
Skúli Hrafn lauk námi í hagfræði með lögfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands árið 2007 og hlaut löggildingu í verðbréfamiðlun árið 2011. Hann mun hefja störf hjá Íslandssjóðum í lok september.
„Hjá Íslandssjóðum starfar öflugt teymi með mikla reynslu og skýran metnað til að sækja fram á íslenskum sjóðastýringarmarkaði. Á þeirri vegferð er mikill styrkur fólginn í því að þekkja markaðinn frá báðum hliðum. Skúli Hrafn kemur til okkar frá einum stærsta fjárfesti landsins og býr því yfir djúpum skilningi á sjónarmiðum fagfjárfesta og þeim kröfum sem þeir gera til öflugrar sjóðastýringar. Sú reynsla, ásamt þeim sterka grunni sem þegar er til staðar hjá Íslandssjóðum, styrkir stöðu okkar til að sækja enn frekar fram. Við hlökkum mikið til samstarfsins og þess að byggja áfram upp Íslandssjóði með Skúla Hrafn í brúnni.“
- Sylvía Kristín Ólafsdóttir, stjórnarformaður Íslandssjóða.