Sleppa aðalvalmynd
home
Leit
Gagnagátt

Fréttir

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2024

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2024

Afkoma sjóða í stýringu hjá Íslandssjóðum á árinu 2024 var jákvæð um 15,5 milljarða króna, sem rennur til viðskiptavina félagsins í formi ávöxtunar. Rekstur Íslandssjóða hf. var stöðugur á árinu og námu þóknanatekjur 1.877 milljónum króna og hagnaður af rekstri félagsins var 433 milljónir króna. Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum 364 milljarðar króna í árslok.

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2023

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2023

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða var 514 milljónir króna árið 2023. Rekstur félagsins var stöðugur á árinu, þrátt fyrir töluvert útflæði úr sjóðum, og námu þóknanatekjur 2.000 milljónum króna. Krefjandi aðstæður á innlendum fjármálamarkaði komu niður á ávöxtun og afkomu af verðbréfaeignum.

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2023

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2023

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða var 225 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2023 samanborið við 280 milljónir króna á sama tíma árið áður. Rekstur félagsins einkenndist nokkuð af krefjandi aðstæðum á innlendum mörkuðum á tímabilinu, vaxtahækkunum og þrálátri verðbólgu.

Íslandssjóðum veitt viðurkenning fyrir góða stjórnarhætti

Íslandssjóðum veitt viðurkenning fyrir góða stjórnarhætti

Íslandssjóðir hf. hlaut í dag, 22. ágúst 2023, viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum níunda árið í röð ásamt sautján öðrum fyrirtækjum. Viðurkenninguna veita Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi. 

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2022

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2022

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða var 640 milljónir króna árið 2022. Rekstur félagsins var stöðugur á árinu og námu þóknanatekjur 2.157 milljónum króna. Eignastýringarmarkaðurinn einkenndist nokkuð af erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum á árinu sem kom niður á ávöxtun og afkomu af verðbréfaeignum.

Fjármagnaður útblástur Íslandssjóða

Fjármagnaður útblástur Íslandssjóða

Við erum stolt af því að hafa birt okkar fjármagnaða útblástur, fyrst sjóðastýringarfyrirtækja á Íslandi, með því að reikna út kolefnisspor sjóða sem við bjóðum upp á fyrir almenna fjárfesta.

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2022

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2022

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða var 280 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022 samanborið við 466 milljónir króna á sama tíma árið áður.

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2021

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2021

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða Íslandssjóða á fyrstu sex mánuðum ársins var stöðugur á milli ára og nam 8,2 milljörðum króna sem renna til yfir 11.000 viðskiptavina félagsins í formi ávöxtunar.

Íslandssjóðum veitt viðurkenning fyrir góða stjórnarhætti

Íslandssjóðum veitt viðurkenning fyrir góða stjórnarhætti

Íslandssjóðir hf. hlaut í dag viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum áttunda árið í röð. Viðurkenninguna veita Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi. 

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2021

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2021

Hagnaður sjóða fyrir almenna fjárfesta nam 15,9 milljörðum króna á árinu 2021 og rennur til viðskiptavina Íslandssjóða í formi ávöxtunar.

Sjóðfélögum Græna sjóðsins fjölgar um 10%

Sjóðfélögum Græna sjóðsins fjölgar um 10%

Sjóðsfélögum Græna sjóðsins hjá Íslandssjóðum hefur fjölgað um 10% á undanförnum þremur mánuðum en sjóðurinn er sá eini sinnar tegundar á Íslandi.

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2020

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2020

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða Íslandssjóða á fyrstu sex mánuðum ársins nam 8,2 milljörðum króna sem renna til yfir 11.000 viðskiptavina í formi ávöxtunar.

Afkoma Íslandssjóða 2020

Afkoma Íslandssjóða 2020

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða Íslandssjóða nam 12,3 milljörðum króna á árinu 2020 og rennur til viðskiptavina Íslandssjóða í formi ávöxtunar.