Hvað er sjóður?
Hér má finna stutta umfjöllun um þá sjóði sem eru í boði fyrir almenna fjárfesta annars vegar og fagfjárfesta hinsvegar. Einnig er fjallað stuttlega um einstaka fjármálagerninga þ.e. hlutabréf, skuldabréf, afleiður og óskráð verðbréf.

Verðbréfasjóðir og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta
Verðbréfasjóðir og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta eru sjóðir um sameiginlega fjárfestingu og fjárfesta ýmist í skuldabréfum, hlutabréfum og/eða öðrum fjármálagerningum. Um sjóðina gilda lög nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og lög nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, X. kafli, og sækja þeir fjárfestingarheimildir sínar til laganna. Fjárfestingarstefnur sjóða má finna í útboðslýsingum þeirra.
Verðbréfasjóðir og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta dreifa áhættu með því að fjárfesta í mörgum fjármálagerningum og er fjárfesting í slíkum sjóðum því áhættuminni en fjárfesting í einstökum fjármálagerningum.
Sjóðirnir eru ávallt innlausnarskyldir og því geta hlutdeildarskírteinishafar óskað eftir innlausn á eignahlut sínum þegar þeim hentar.
Munurinn á verðbréfasjóði og sérhæfðum sjóði fyrir almenna fjárfesta liggur helst í fjárfestingarheimildum þeirra og að auki hefur verðbréfasjóður heimild til markaðssetningar á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) en ekki sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta.
Þar sem sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta hafa rýmri fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir geta þeir því verið áhættumeiri.
Sérhæfðir sjóðir
Um sérhæfða sjóði gilda lög nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða en einungis fagfjárfestum er heimilt að fjárfesta í þeim.
Engar lagalegar takmarkanir eru á fjárfestingum slíkra sjóða og fjárfesting í þeim er mun áhættusamari en í öðrum sjóðum. Sérhæfðir sjóðir eru ekki innlausnarskyldir og hafa gjarnan fyrirfram skilgreindan líftíma.
Einstakir fjármálagerningar

Hvernig sjóður hentar mér?
Þegar kemur að því að ákveða hvaða sjóði skal fjárfeta í er mikilvægt að huga að fjárfestingarmarkmiði hvers og eins ásamt áhættuþoli og fjárfestingartíma.
Nánar
Yfirlit sjóða
Íslandssjóðir bjóða upp á úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er félagið stærst í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu.
NánarFyrirvari vegna fræðsluefnis
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.