Hvernig sjóður hentar mér?
Fjárfestingarmarkmið hvers og eins skipta máli þegar ákveðið er hvaða sjóði skal fjárfesta í. Mikilvægt er að huga vel að áhættuþoli og fjárestingartíma.

Þegar kemur að því að ávaxta fjármuni skiptir fjárfestingatími máli, þ.e.a.s. hvort um er að ræða ávöxtun til lengri eða skemmri tíma. Ef ætlunin er að ávaxta fjármuni til lengri tíma er jafnan tekin meiri áhætta í von um betri ávöxtun. Fyrir skammtímasparnað er áherslan iðulega á að hafa greiðan aðgang að fjármunum og að lágmarka sveiflur og áhættu.
Áhættuþol
Sveiflur á gengi sjóða er einn helsti mælikvarði á áhættu. Þar sem litlar sveiflur eru á gengi er áhættan lítil en þegar sveiflur aukast verður áhættan meiri. Innlán og ríkisskuldabréf eru almennt dæmi um áhættulitla fjárfestingu en meiri áhætta fylgir fjárfestingu í hlutabréfum. Þó skiptir líftími skuldabréfa og útgefandi líka máli, en sem dæmi má segja að vaxtaáhætta í löngum ríkisskuldabréfum sé nokkuð há til skemmri tíma en mótaðilaáhættan lítil.
Þegar talað er um áhættuþol er átt við hversu mikla áhættu viðskiptavinur vill taka. Ef fjármagn sem lagt er í sjóð er varasjóður viðkomandi er skynsamlegt að fjárfesta í sjóðum með lítilli áhættu. Aftur á móti ef viðkomandi þolir meiri sveiflur og áhættu getur sá hinn sami fjárfest í áhættumeiri sjóðum, til langs tíma og náð þannig hærri ávöxtun. Hærri ávöxtun fæst almennt með áhættumeiri fjárfestingakostum.
Fjárfestingu í sjóði fylgir ávallt áhætta. Fjárfesting í sjóði er þó áhættuminni en fjárfesting í stökum verðbréfum þar sem sjóður fjárfestir í mörgum verðbréfum og dreifir þannig áhættunni.
Fjárfestingartími
Þegar ætlunin er að spara til skamms tíma er skynsamlegt að velja sjóði sem fjárfesta í innlánum og stuttum ríkisskuldabréfum þar sem litlar sveiflur eru á gengi sjóða.
Kostnaður við kaup í sjóði er mismunandi á milli sjóða eða á bilinu 0-2%. Ef viðskiptavinur hefur hugsað sér að spara í stuttan tíma er því gott að velja sjóð sem er áhættulítill og kostnaður við kaup eða sölu er enginn eins og t.d. IS Lausafjársafn og IS Veltusafn.
Samkvæmt fjármálafræðum skila dreifð eignasöfn almennt hærri ávöxtun og lægri áhættu til lengri tíma litið og er því ákjósanlegt að fjárfesta til lengri tíma ef kostur er á.

Yfirlit allra sjóða
Íslandssjóðir bjóða upp á úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er félagið stærst í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu.
Fyrirvari vegna fræðsluefnis
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.