IS Einkasöfn
Blandaðir sjóðir sem bjóða upp á mismunandi áherslur í samsetningu fjárfestinga og fjárfestingartíma. Sjóðunum er stýrt af sérfræðingum sem vakta tækifæri á markaði og sjá um að færa á milli eignaflokka (t.d. hlutabréfa og skuldabréfa).

IS Einkasöfn eru sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta þar sem bjóðast fjölbreyttar leiðir til að byggja upp dreifðan sparnað til lengri eða skemmri tíma.
IS Einkasöfn bjóða upp á mismunandi áherslur í samsetningu fjárfestinga og fjárfestingartíma. Sjóðunum er stýrt af sérfræðingum sem vakta tækifæri á markaði og sjá um að færa á milli eignaflokka (t.d. hlutabréfa og skuldabréfa).
Hvert og eitt IS Einkasafn skiptist í flokka A og B:
- Flokkur B er með lægri umsjónarlaunum og fyrir fjárfesta sem eru með samning um eignastýringu eða fjárfestingarráðgjöf við Íslandsbanka.
- Flokkur A er fyrir aðra almenna fjárfesta.
Allir sem eiga hlutdeild í safni eiga jafnan rétt til tekna og eigna þess í hlutfalli við hlutdeild sína, en umsjónarlaun í flokki B eru lægri.
Innan IS Einkasafna geta viðskiptavinir valið á milli mismunandi fjárfestingarstefna. IS Einkasafn A er t.a.m. ekki með neinar heimildir til að fjárfesta í hlutabréfum en IS Einkasafn E er með heimildir til að fjárfesta allt að 75% af eignum sjóðsins í hlutabréfum og IS Einkasafn Erlent allt að 100% af eignum sjóðsins í hlutabréfum. Þannig geta viðskiptavinir Íslandssjóða valið sér sjóð sem hentar áhættuþoli hvers og eins viðskiptavinar en eftirlátið sjóðstjóra að færa á milli eignaflokka eftir því hvernig markaðir hreyfa sig. IS Einkasöfn er því góður kostur fyrir sparnað í áskrift.
Almennt má búast við meiri sveiflum í safni eftir því sem vægi hlutabréfa er hærra. Sjá nánar um áhættu hér.
Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér efni útboðslýsingar IS Einkasafna af kostgæfni sem og upplýsingablöð.

Blandaðir sjóðir - yfirlit
Blandaðir sjóðir Íslandssjóða leggja áherslu á dreifð eignasöfn þar sem áhættunni er dreift á milli nokkurra eignaflokka á borð við hlutabréf, skuldabréf og innlán.
Nánar
Yfirlit sjóða
Íslandssjóðir bjóða upp á úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er félagið stærst í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu.
Fyrirvari vegna fræðsluefnis
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.