Sleppa aðalvalmynd
home
Leit
Gagnagátt

Blandaðir sjóðir

Blandaðir sjóðir Íslandssjóða leggja áherslu á dreifð eignasöfn þar sem áhættunni er dreift á milli nokkurra eignaflokka á borð við hlutabréf, skuldabréf og innlán.

Fjöldi blandaðra sjóða

8

Vinsælasti sjóðurinn

Skilgreint sem sá sjóður með flesta viðskiptavini á skilgreindri dagsetningu í sínum flokki samanborið við aðra sambærilega sjóði, þ.e. einn skuldabréfasjóður, einn blandaður sjóður og einn hlutabréfasjóður.

IS Einkasafn C

Viltu byrja að fjárfesta í sjóðum?

Hér finnur þú ýmsar gagnlegar upplýsingar um viðskipti með sjóði.

Áskrift í sjóði

Það er einfalt að skrá sig í áskrift. Þú getur skráð þig í áskrift í sjóðum Íslandssjóða í netbanka Íslandsbanka. Í áskrift færðu 100% afslátt af kostnaði við kaup og greiðir ekki afgreiðslugjald. Lágmarksupphæð er eingöngu 5.000 kr.


Opna netbanka

Viltu ráðgjöf?

Ráðgjafar í verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka geta aðstoðað við kaup og sölu í hlutabréfum, skuldabréfum og sjóðum.

Panta símtal

Hvernig sjóður hentar mér?

Þegar kemur að því að ákveða hvaða sjóði skal fjárfesta í er mikilvægt að huga að fjárfestingarmarkmiði hvers og eins ásamt áhættuþoli og fjárfestingartíma.

Nánar
Þjónusta

Panta símtal með ráðgjafa

Ráðgjafar í verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka geta aðstoðað við kaup og sölu í hlutabréfum, skuldabréfum og sjóðum.

Panta símtal

Fyrirvarar

Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingaskjöl og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimildir og notkun afleiðna.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun
Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.