Markmið IS Einkasafns A er annars vegar að verja höfuðstól hlutdeildarskírteinishafa og hins vegar að auka verðmæti hans með því að ávaxta fjármuni sjóðsdeildarinnar á virkan hátt í innlendum og erlendum fjármálagerningum. Sjóðsdeildin fjárfestir í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og annarra sérhæfðra sjóða, auk þess að fjárfesta í stökum fjármálagerningum og innlánum í samræmi við fjárfestingastefnu.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.
Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.
Gengisþróun og ávöxtun
Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.