Sleppa aðalvalmynd
home
Leit
Gagnagátt

Það er auðvelt að byrja

Áttu vörslusafn eða hefurðu áður keypt í sjóðum? Ýttu þá á hnappinn og byrjaðu núna. Það getur verið spennandi að hefja fjárfestingar, en eðlilegt er að spurningar vakni í upphafi. Hér leiðum við þig í gegnum fyrstu skrefin.

Skref fyrir skref

Settu þér sparnaðarmarkmið

Hverju vilt þú spara fyrir?

Settu þér markmið og leggðu fyrir mánaðarlega – þannig getur þú átt fyrir hlutunum hvort sem það er heimsreisa, nýtt heimilistæki eða eitthvað allt annað.

Stofna vörslureikning

Vörslureikningur

Það er nauðsynlegt að búa til vörslureikning til þess að fjárfesta í bæði sjóðum og verðbréfum. Vörslureikningur birtist í yfirliti í netbanka og í Íslandsbankaappinu.

Þú getur stofnað vörslureikning hér

Hvernig sjóður hentar mér?

Að spara í sjóðum er einföld og góð leið til uppbyggingar á sparnaði. Kynntu þér mismunandi sjóði og veldu þann sem þér líst best á.

Hvernig sjóður hentar mér?

Hvernig á að kaupa og selja?

Í netbanka Íslandsbanka og Íslandsbankaappinu hefur þú aðgang að fjölbreyttu úrvali sjóða Íslandssjóða. Þú getur keypt í sjóðum hvenær sem er og auðvelt er að skrá sig í reglulega áskrift til að byggja upp sparnað á þægilegan hátt. Þegar þú hefur stofnað vörslusafn hjá Íslandsbanka þá getur þú átt viðskipti með sjóði Íslandssjóða í bæði netbanka og Íslandsbankaappinu hvenær sem er.  

Opna netbanka

Fylgstu með fjárfestingunni

Þú getur svo fylgst með fjárfestingunni í netbankanum eða Íslandsbankaappinu.

Opna netbanka
Þjónusta

Panta símtal með ráðgjafa

Ráðgjafar í verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka geta aðstoðað við kaup og sölu í hlutabréfum, skuldabréfum og sjóðum.

Panta símtal

Viltu byrja að fjárfesta í sjóðum?

Hér finnur þú ýmsar gagnlegar upplýsingar um viðskipti með sjóði.

Áskrift í sjóði

Það er einfalt að skrá sig í áskrift. Þú getur skráð þig í áskrift í sjóðum Íslandssjóða í netbanka Íslandsbanka. Í áskrift færðu 100% afslátt af kostnaði við kaup og greiðir ekki afgreiðslugjald. Lágmarksupphæð er eingöngu 5.000 kr.


Opna netbanka

Viltu ráðgjöf?

Ráðgjafar í verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka geta aðstoðað við kaup og sölu í hlutabréfum, skuldabréfum og sjóðum.

Panta símtal

Yfirlit sjóða

Íslandssjóðir bjóða upp á úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er félagið stærst í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu.

Nánar

Fyrirvari vegna fræðsluefnis

Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.