Sleppa aðalvalmynd
home
Leit
Gagnagátt

Ábyrgar fjárfestingar

Íslandssjóðir hafa markað sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar og notar starfsfólk félagsins aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga í allri eignastýringu.

Samstarf á sviði ábyrgra fjárfestinga

Íslandssjóðir eru einn af stofnaðilum Samtaka um ábyrgar fjárfestingar á Íslandi, IcelandSIF (Iceland Sustainable Investment Forum).

Samtökin voru stofnuð 13. nóvember 2017 og er tilgangur þeirra að stuðla að aukinni þekkingu og umræðu um aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Á meðal stofnaðila voru ellefu lífeyrissjóðir, fjórir bankar, þrjú tryggingafélög, fjögur rekstrarfélög verðbréfasjóða og eitt eignastýringarfyrirtæki.

Íslandssjóðir undirrituðu samstarfssamning við PRI (Principles for Responsible Investment) í desember 2017.

PRI eru sjálfstæð samtök um ábyrgar fjárfestingar sem njóta stuðnings tveggja aðildarfélaga Sameinuðu þjóðanna, United Nations Environment Programme Finance Initiative (UNEP FI) og United Nations Global Compact (UNGC).

Tilgangur PRI er að greina áhrif fjárfestinga á umhverfismál, samfélagsmál og stjórnarhætti og styðja þá sem hafa undirritað samning við PRI að innleiða mat á þessum þáttum í ákvarðanir varðandi fjárfestingar og eigendastefnu. Samtökin eru óháð stjórnvöldum og eru ekki rekin í hagnaðarskyni en þau hvetja samstarfsaðila til að auka ávöxtun til langs tíma og stjórna áhættu með því að beita aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga.

Upplýsingagjöf tengd sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (e. SFDR)

Hér má nálgast upplýsingar sem Íslandssjóðir birta í samræmi við lög nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

Nánar

Ófjárhagsleg upplýsingagjöf

Íslandssjóðir birta árlega skýrslur um fjármagnaða losun sjóða fyrir almenna fjárfesta sem félagið rekur, UFS uppgjör ásamt áhrifaskýrslu fyrir sjóðinn IS Græn skuldabréf sem má nálgast hér.

Nánar

Græn skuldabréf

Íslandssjóðir stofnuðu sjóðinn IS Græn skuldabréf árið 2018 og var sjóðurinn fyrsti græni skuldabréfasjóðurinn í boði fyrir sparifjáreigendur. Hér má nálgast frekari upplýsingar um græn skuldabréf.

Nánar