Áhættuvísir

Sjóðir Íslandssjóða eru flokkaðir eftir því hversu líklegt er að lækkun muni eiga sér stað í verði vegna hreyfinga á mörkuðum. Flokkunin byggir á áhættumælikvarða sem grundvallast af svokallaðri PRIIPS reglugerð, sbr. lög nr. 55/2021 um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta og leiðbeiningum Evrópsku verðbréfaeftirlitsstofnunarinnar (e. ESMA). Áhættumælikvarðinn heitir samantekinn áhættuvísir (SRI) og felur í sér markaðsáhættu og útlánaáhættu. Flokkur 1 endurspeglar minnstu sveiflur í ávöxtun og þar með minnstu áhættuna en flokkur 7 þá mestu.

Samantekinn áhættuvísir byggir á sögulegri ávöxtun og því er vert að benda á að sveiflur í ávöxtun í fortíð gefa ekki áreiðanlega vísbendingu eða tryggingu fyrir sveiflum í ávöxtun í framtíð. Ef breytingar verða á áhættusniði- og ávöxtunarsniði sjóðs er mælikvarðinn endurskoðaður og flokkunin getur breyst.

Samantekinn áhættuvísir nær ekki yfir alla þá áhættuþætti sem fylgja fjárfestingum í sjóðum. Hann er aðallega tölfræðileg lýsing á sveiflum í ávöxtun sjóða. Hægt er að nálgast frekari umfjöllun um áhættu sem áhættuvísirinn nær ekki yfir í lykilupplýsingum og útboðslýsingum sjóða og hér.

 


Áhættuvísir

Sjóður

            1

 
   IS Lausafjársafn
   IS Veltusafn

             2

 
   IS Einkasafn A
   IS Einkasafn B
   IS Einkasafn C

   IS Eignasafn - Ríki og sjóðir
   IS Ríkissafn
   IS Sértryggð skuldabréf
   IS Skuldabréfasafn
   IS Ríkisskuldabréf meðallöng
   IS Ríkisskuldabréf löng
   IS Ríkisskuldabréf óverðtryggð
   IS Sértryggð skuldabréf VTR
   IS Græn skuldabréf
   IS Vaxtastefna

             3

   IS Einkasafn D
   IS Einkasafn E

   IS Einkasafn Erlent (USD)
   IS Eignasafn

 

 
             4


   IS Einkasafn Erlent (ISK)
   IS Heimssafn
   IS Hlutabréfasjóður
   IS Úrvalsvísitölusjóður

             5

   IS EQUUS Hlutabréf
   

 
             6

 

 
             7

 

 
 Áhættuvísirinn er reiknaður mánaðarlega.
 
Fyrirvari vegna fræðsluefnis
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.