IS Einkasöfn
IS Einkasöfn eru sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta þar sem bjóðast fjölbreyttar leiðir til að byggja upp dreifðan sparnað til lengri eða skemmri tíma. IS Einkasöfn bjóða upp á mismunandi áherslur í samsetningu fjárfestinga og fjárfestingartíma. Sjóðunum er stýrt af sérfræðingum sem vakta tækifæri á markaði og sjá um að færa á milli eignaflokka (t.d. hlutabréfa og skuldabréfa).
Hvert og eitt IS Einkasafn skiptist í flokka A og B. Flokkur B er fyrir fjárfesta sem eru með samning um eignastýringu eða fjárfestingarráðgjöf við Íslandsbanka, en flokkur A er fyrir aðra almenna fjárfesta. Allir sem eiga hlutdeild í safni eiga jafnan rétt til tekna og eigna þess í hlutfalli við hlutdeild sína, en umsjónarlaun í flokki B eru lægri.
Innan IS Einkasafna geta viðskiptavinir valið á milli mismunandi fjárfestingarstefna. IS Einkasafn A er t.a.m. ekki með neinar heimildir til að fjárfesta í hlutabréfum en IS Einkasafn E er með heimildir til að fjárfesta allt að 75% af eignum sjóðsins í hlutabréfum og IS Einkasafn Erlent allt að 100% af eignum sjóðsins í hlutabréfum. Þannig geta viðskiptavinir Íslandssjóða valið sér sjóð sem hentar áhættuþoli hvers og eins viðskiptavinar en eftirlátið sjóðstjóra að færa á milli eignaflokka eftir því hvernig markaðir hreyfa sig. IS Einkasöfn er því góður kostur fyrir sparnað í áskrift.
Almennt má búast við meiri sveiflum í safni eftir því sem vægi hlutabréfa er hærra. Sjá nánar, áhætta og áhættuflokkun.
IS Einkasöfn |
Hentugur fjárfestingartími |
Áhættuflokkun |
2 ár+ 3 ár+ 4 ár+ 4 ár+ 5 ár+ 5 ár+ 5 ár+
|
Flokkur 2 Flokkur 3 Flokkur 3 Flokkur 4 Flokkur 4 Flokkur 6 Flokkur 5
|
Tafla síðast uppfærð 01.02.22.
Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér efni útboðslýsingar IS Einkasafna af kostgæfni sem og upplýsingablöð.
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.