IS Haf fjárfestingar slhf.
Sjóðurinn IS Haf fjárfestingar slhf. var stofnaður í upphafi árs 2023. Um lokaðan sjóð er að ræða og nemur stærð hans 10 milljörðum króna. Fjárfestingargeta sjóðsins getur numið margfaldri stærð hans með meðfjárfestingarheimild hluthafa.
Á meðal fjárfesta í sjóðnum er Útgerðarfélag Reykjavíkur en félagið er rótgróið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki og reyndur fjárfestir á sviði sjávarútvegs. Aðrir fjárfestar eru að mestu leyti íslenskir lífeyrissjóðir.
Sjóðurinn fjárfestir í óskráðum félögum á Íslandi, eða félögum með sterka tengingu við Ísland, sem eru í haftrengdri starfsemi. Fjárfestingum er dreift meðal fimm flokka og mun sjóðurinn fjárfesta í félögum sem starfa á ólíkum stað í virðiskeðju sjávarfangs:
- Hráefni í sjávarútvegi og fiskeldi
- Haftengd tækni
- Innviðir og þjónusta við sjávarútveg og fiskeldi
- Sala, ráðgjöf og markaðsstarfsemi
- Sjávarlíftækni
Sjóðurinn leggur áherslu á sjálfbærni og mun samþætta umhverfismál, samfélagsmál og stjórnarhætti (UFS þætti) inn í alla greiningarvinnu, ákvarðanatöku og virkt eignarhald. Sjóðurinn horfir til þess að vera meirihlutaeigandi en getur einnig fjárfest í minnihluta með sterka minnihlutavernd þannig að sjóðurinn sé í stöðu til að hafa áhrif á framgang og stjórnun viðkomandi fyrirtækis.
Nánari upplýsingar veita:
Kristrún Auður Viðarsdóttir Brynjólfur Gísli Eyjólfsson
Sjóðstjóri Sjóðstjóri
s: 844-4788 s: 853-1021
kristrun@islandssjodir.is bge@islandssjodir.is