Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjú ár eða lengur í sjóði þar sem fjárfest er í verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum. Áætlaður meðallíftími eignasafns er ótakmarkaður og þýðir það að verð bréfa í sjóðnum geta sveiflast mikið við breytingar á ávöxtunarkröfu bréfanna á markaði.
Helstu kostir
Virk stýring á verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum
Hátt hlutfall verðtryggingar
Ódýr leið á sértryggðan skuldabréfamarkað
Fjárfest í traustum verðbréfum tryggðum með undirliggjandi eignasafni
Engin binding, innlausn með tveggja daga fyrirvara
Markmið sjóðsins er langtímaávöxtun með því að fjárfesta í verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum, ásamt verðtryggðum skuldabréfum útgefnum af eða með ábyrgð ríkissjóðs Íslands og innlánum innlendra fjármálafyrirtækja.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.
Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.
Gengisþróun og ávöxtun
Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.