IS Skuldabréfasafn

Ráðlagður fjárfestingartími: 3 ár+

Fyrir hvern?

Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjú ár eða lengur í sjóði þar sem fjárfest er með dreifðum hætti á skuldabréfamarkaði.

Helstu kostir

  • Virk stýring á skuldabréfamarkaði
  • Eignadreifing
  • Ódýr leið á skuldabréfamarkað

Gengi
2.110,49
-0,93 (-0,04%)
Gengi 19.12.2024
Nafnávöxtun
Skuldabréf og víxlar með ríkisábyrgð 11.7
Skuldabréf og víxlar fyrirtækja 33.6
Sértryggð skuldabréf 6.2 
Önnur skuldabréf og víxlar fjármálafyrirtækja 33.8
Skuldabréf og víxlar sveitarfélaga

8.6

Laust fé
6.1

Eignasafn og stefna

Markmið sjóðsins er langtímaávöxtun með því að fjárfesta í skuldabréfum, víxlum og öðrum peningamarkaðsgerningum útgefnum af eða með ábyrgð ríkissjóðs Íslands, sveitarfélögum eða með ábyrgð þeirra, lánasjóði sveitarfélaga, fyrirtækjum, þ.m.t. fjármálafyrirtækjum og innlánum innlendra fjármálafyrirtækja.

Staða 01.12.2024

Gengisþróun

Grunnupplýsingar

Tegund sjóðs
Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta
Stofnár
2011
Grunnmynt
ISK
Lágmarkskaup
kr.  10.000
Lágmarkskaup í áskrift
kr.  5.000
Áhættuvísir
2
Losunarstyrkur (tCO2e/ISKm)
0,14
SFDR flokkun
6. gr.
Rekstraraðili
Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili
Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjóri/ar
Ingólfur S. Kristjánsson Helga Óskarsdóttir

Þóknanir og viðskiptapantanir

Kostnaður við kaup
0,80%
- afsláttur í Netbanka
25%
- afsláttur í áskrift
50%
Árleg umsjónarlaun
1,00%
Afgreiðslugjald
kr.  1000
- afsláttur í netbanka
100%
Uppgjörstími
Kaup: 2 viðsk.dagar (T+2)
Sala: 5 viðsk. dagar (T+5)
Viðmiðunartími
kl. 15:00
Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.