Valmynd

Íslandssjóðir hf. – Ársuppgjör 2012

Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2012.

  • Íslandssjóðir hf. - Ársuppgjör 2012

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2012

  • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikninga verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  • Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2012 nam 258 m.kr. samanborið við 247 m.kr. árið 2011.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.208 m.kr. samanborið við 1.139 m.kr. árið áður.
  • Rekstrargjöld námu 886 m.kr. samanborið við 830 m.kr. árið áður.
  • Heildareignir félagsins námu 3.006 m.kr. í árslok 2012 en voru 2.854 m.kr. í ársbyrjun.
  • Eigið fé í árslok 2012 nam 1.925 m.kr. en var 1.741 m.kr. í ársbyrjun.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 153,2% í árslok 2012 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
  • Í lok desember 2012 voru 19 sjóðir í rekstri og slitum hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 114.145 milljónum króna. Einn sjóður sem er skráður í Lúxemborg er í stýringu félagsins.
  • Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 7.643 m.kr. árið 2012 samanborið við hagnað uppá 8.759 m.kr. árið 2011.
  • Á árinu fóru fram lokagreiðslur úr peningamarkaðssjóðunum Sjóður 9.1 EUR og Sjóður 9.3 USD. Allir fjármunir þessara tveggja sjóða hafa nú verið innheimtir og greiddir út til hlutdeildarskírteinishafa. Ekki verður því um frekari útgreiðslur að ræða og hefur sjóðunum verið slitið.
  • Félagið tók á árinu yfir rekstur og stýringu verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags Byrs. Sjóðirnir eru Skuldabréfasjóðurinn, Alþjóða virðissjóðurinn og Alþjóða vaxtarsjóðurinn, auk Fyrirtækjasjóðsins sem er í slitaferli. Við þessa yfirtöku jukust eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum um 2.292 milljónir. Með breytingunni fjölgaði viðskiptavinum Íslandssjóða og býðst þeim nú breiðara vöruúrval en áður.
  • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2012.
  • Í lok desember 2012 störfuðu 17 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.

 

Lykiltölur í m.kr.

Lykiltölur í m.kr. 2012 2011
Hreinar rekstrartekjur 1.208 1.139
Rekstrargjöld 886 830
Hagnaður fyrir skatta 322 309
Hagnaður eftir skatta 258

247

Eigið fé 31.12 1.925 1.741

 

Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða fyrir árið 2012

  • Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2012 nam 6.595 m.kr., samanborið við 8.468 m.kr. hagnað árið 2011.
  • Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða í árslok 2012 nam 104.057 m.kr. samanborið við 106.009 m.kr. árið 2011.

 

Lykiltölur í m.kr.

Lykiltölur í m.kr. Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 Úrvalsvísitala - Sjóður 6 Löng ríkissk.br. - Sjóður 7 Heimssafn - Sjóður 12
Hagnaður (tap) tímabilsins 1.496
53 2.231 120
Hrein eign í lok tímabils 34.402 506 42.891 725
Lykiltölur í m.kr. Ríkissafn Veltusafn Eignasafn Eignasafn – Ríki og sjóðir
Hagnaður (tap) tímabilsins 588 343 31 17
Hrein eign í lok tímabils 15.184 5.194 513 819
Lykiltölur í m.kr. Lengri skuldabréfa-sjóðurinn
Alþjóða virðissjóðurinn
Alþjóða vaxtarsjóðurinn
Hagnaður (tap) tímabilsins 53 5 4
Hrein eign í lok tímabils 1.606 116 83
Lykiltölur í m.kr. Sjóður 1A Sjóður 1B Sjóður 11A Sjóður 11B Samtals verðbréfasjóðir
Hagnaður (tap) tímabilsins 616 953 30 56 6.595
Hrein eign í lok tímabils 697 1.079 85 157 104.057

 

Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða fyrir árið 2012

  • Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2012 nam 1.048 m.kr. samanborið við 291 m.kr. hagnað árið 2011.
  • Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða árslok 2012 nam 10.088 m.kr. samanborið við 6.881 m.kr. árið 2011.

Lykiltölur í m.kr.

Lykiltölur í m.kr. Fókus - Vextir IS Hlutabréfa-sjóðurinn Skuldabréfasafn Fyrirtækja-sjóðurinn Sjóður 9.1 EUR Sjóður 9.3 USD Samtals fjárfestingarsjóðir
Hagnaður (tap) tímabilsins 200 618 114
12 (2) 105 1.048
Hrein eign í lok tímabils 3.517 4.370 2.167 34 0 0 10.088

 

Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi 2, 4. hæð og hjá VÍB - Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, einnig á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is frá og með 7. mars.

Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440 4593.