Valmynd

Íslandssjóðir fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti hefur ákveðið að Íslandssjóðir hf. fái viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Viðurkenning þessi er byggð á úttekt á stjórnarháttum sem unnin var af KPMG í október 2013. Niðurstaða úttektar KPMG á stjórnarháttum Íslandssjóða hf. gefur skýra mynd af stjórnarháttum fyrirtækisins og bendir til þess að fyrirtækið geti að mörgu leyti verið öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar þegar kemur að góðum stjórnarháttum.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX Iceland hf. og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands hafa tekið höndum saman um að efla eftirfylgni íslenskra fyrirtækja hvað varðar góða stjórnarhætti. Í þeim tilgangi er fyrirtækjum veitt tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda. Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti hefur það mat með höndum. Söfnun gagna fer fram hjá ráðgjöfum eða öðrum aðilum sem Rannsóknarmiðstöðin telur hæfa til verksins. Rannsóknarmiðstöðin byggir mat sitt í meginatriðum á því hvort gögnin gefi til kynna að viðkomandi fyrirtæki fylgi leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland hf. gefa út. Þau fyrirtæki sem standast matið á framangreindum forsendum er veitt nafnbótin Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.