Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2013.
Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2013
§ Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikninga verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
§ Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2013 nam 299 m.kr. samanborið við 258 m.kr. árið 2012.
§ Hreinar rekstrartekjur námu 1.350 m.kr. samanborið við 1.208 m.kr. árið áður.
§ Rekstrargjöld námu 976 m.kr. samanborið við 886 m.kr. árið áður.
§ Heildareignir félagsins námu 2.595 m.kr. í árslok 2013 en voru 3.006 m.kr. í ársbyrjun.
§ Eigið fé í árslok 2013 nam 2.031 m.kr. en var 1.925 m.kr. í ársbyrjun.
§ Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 211,3% í árslok 2013 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
§ Í lok desember 2013 voru 16 sjóðir í rekstri og slitum hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 117.725 milljónum króna. Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 6.551 m.kr. árið 2013 samanborið við hagnað uppá 7.643 m.kr. árið 2012.
§ Skipulagsbreytingar urðu hjá félaginu á árinu þegar stofnað var svið sérhæfðra fjárfestinga og þrír starfsmenn ráðnir til að sinna uppbygginga í þeim eignaflokki. Félagið tók yfir þjónustu við Fast-1 sem er sérhæft fjárfestingarfélag í fasteignum. Einnig var stofnaður fagfjárfestasjóðurinn Akur sem fjárfestir í óskráðum hlutabréfum.
§ Félagið sameinaði nokkra verðbréfasjóði á árinu. Lengri skuldabréfasjóðurinn var sameinaður Ríkisskuldabréfum - Sjóði 5 í september og Alþjóða virðissjóðurinn og Alþjóða vaxtarsjóðurinn voru sameinaðir Heimssafni – Sjóði 12 í desember. Einnig var sjóði sem skráður var í Lúxemborg slitið í nóvember.
§ Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2013.
§ Í lok desember 2013 störfuðu 18 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.
Lykiltölur í m.kr.
|
2013 |
2012 |
Hreinar rekstrartekjur |
1.350 |
1.208 |
Rekstrargjöld |
976 |
886 |
Hagnaður fyrir skatta |
374 |
322 |
Hagnaður eftir skatta |
299 |
258 |
Eigið fé 31.12. |
2.031 |
1.925 |
Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða fyrir árið 2013
· Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2013 nam 3.779 m.kr., samanborið við 6.595 m.kr. hagnað árið 2012.
· Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða í árslok 2013 nam 99.018 m.kr. samanborið við 104.057 m.kr. árið 2012.
Lykiltölur í m.kr.
|
Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 |
Úrvalsvísitala -Sjóður 6 |
Löng ríkissk.br. - Sjóður 7 |
Heimssafn - Sjóður 12 |
Hagnaður (tap) ársins |
796 |
105 |
617 |
97 |
Hrein eign í árslok |
35.113 |
525 |
38.346 |
993 |
|
Ríkissafn |
Veltusafn |
Eignasafn |
Eignasafn – Ríki og sjóðir |
Hagnaður (tap) ársins |
639 |
211 |
68 |
25 |
Hrein eign í árslok |
15.781 |
3.893 |
971 |
731 |
|
Lengri skuldabréfa-sjóðurinn |
Alþjóða virðissjóðurinn |
Alþjóða vaxtarsjóðurinn |
Hagnaður (tap) ársins |
69 |
17 |
3 |
Hrein eign í árslok |
0 |
0 |
0 |
|
Sjóður 1A |
Sjóður 1B |
Sjóður 11A |
Sjóður 11B |
Samtals verðbréfasjóðir |
Hagnaður (tap) ársins |
347 |
537 |
87 |
161 |
3.779 |
Hrein eign í árslok |
874 |
1.353 |
153 |
285 |
99.018 |
Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða fyrir árið 2013
§ Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2013 nam 2.772 m.kr. samanborið við 1.048 m.kr. hagnað árið 2012.
§ Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða í árslok 2013 nam 18.707 m.kr. samanborið við 10.088 m.kr. árið 2012.
Lykiltölur í m.kr.
|
Fókus - Vextir |
IS Hlutabréfa-sjóðurinn |
Skuldabréfasafn |
Fyrirtækja-sjóðurinn |
Samtals fjárfestingarsjóðir |
Hagnaður (tap) ársins |
76 |
2.582 |
117 |
-3 |
2.772 |
Hrein eign í árslok |
4.470 |
9.702 |
4.524 |
11 |
18.707 |
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi 2 og hjá VÍB, Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, einnig á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is frá og með 17. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440 4593.