Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2014.
Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2014
- Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
- Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2014 er 25 m.kr. samanborið við 146 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
- Rekstrargjöld námu 572 m.kr. samanborið við 479 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og hækkuðu um 19,4%.
- Hreinar rekstrartekjur námu 603 m.kr. samanborið við 662 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður, lækkuðu um 8,9%.
- Eigið fé 30. júní 2014 nam 1.832 m.kr. en var 2.031 m.kr. í ársbyrjun.
- Heildareignir félagsins 30. júní 2014 námu 2.414 m.kr. en voru 2.595 m.kr. í árslok 2013.
- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 209,6% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
- Í lok júní 2014 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 109.759 milljónum króna samanborið við 117.725 m.kr. í lok árs 2013. Þar af eru 12 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 92.010 milljónir króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 17.749 milljónir króna.
- Í ársbyrjun 2014 tók fagfjárfestasjóðurinn Akur fjárfestingar til starfa en tilkynnt var um stofnun sjóðsins á seinni helmingi 2013. Sjóðurinn er í rekstri Íslandssjóða og hefur fjárfestingargetu uppá 7,3 milljarða króna. Hann telst til framtakssjóða og fjárfestir því einkum í óskráðum hlutabréfum.
- Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte ehf. en við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2014.
- Á fyrri hluta ársins störfuðu 18 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.
Lykiltölur í m.kr.
Lykiltölur í m.kr. | 6 mán. 2014 | 6. mán 2013 |
---|---|---|
Hreinar rekstrartekjur | 603 | 662 |
Rekstrargjöld | 572 |
479 |
Hagnaður fyrir skatta | 31 |
183 |
Hagnaður eftir skatta | 25 |
146 |
Eigið fé |
1.832 | 1.878 |
Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins
- Tap verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 474 m.kr. samanborið við 2.945 m.kr. hagnað fyrstu sex mánuði ársins 2013.
- Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða nam 92.010 m.kr. samanborið við 99.018 m.kr. í árslok 2013.
Lykiltölur í m.kr.
Lykiltölur í m.kr. | Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 | Úrvalsvísitala - Sjóður 6 | Löng ríkissk.br. - Sjóður 7 | Heimssafn - Sjóður 12 |
---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) tímabilsins | -359 |
-35 | -472 | 17 |
Hrein eign í lok tímabils | 32.537 | 375 | 34.584 | 987 |
Lykiltölur í m.kr. | Ríkissafn | Veltusafn | Eignasafn | Eignasafn – Ríki og sjóðir |
---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) tímabilsins | 139 | 95 | -8 | -4 |
Hrein eign í lok tímabils | 15.895 | 3.842 | 1.039 | 692 |
Lykiltölur í m.kr. | Sjóður 1A | Sjóður 1B | Sjóður 11A | Sjóður 11B | Samtals verðbréfasjóðir |
---|---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) tímabilsins | 52 | 81 | 7 | 14 | -474 |
Hrein eign í lok tímabils | 684 | 1.060 | 110 | 205 | 92.010 |
Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins
- Tap fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini fyrstu sex mánuðina nam 327 m.kr. samanborið við 1.205 m.kr. hagnað fyrstu 6 mánuðina 2013.
- Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða nam 17.749 m.kr. samanborið við 18.707 m.kr. í árslok 2013.
Lykiltölur í m.kr.
Lykiltölur í m.kr. | Fókus - Vextir | IS Hlutabréfa-sjóðurinn | Skuldabréfasafn | Fyrirtækja-sjóðurinn | Samtals fjárfestingarsjóðir |
---|---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) tímabilsins | -22 | -283 | -23 |
1 | -327 |
Hrein eign í lok tímabils | 4.079 | 9.398 | 4.261 | 11 | 17.749 |
Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi, 4. hæð og hjá VÍB, Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, einnig á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is frá og með 22. ágúst 2014.
Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440-4593.