Íslandssjóðir hf. er leiðandi félag á sviði sjóðastýringar og annast rekstur og stýringu verðbréfasjóða, fjarfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða. Félagið er sjálfstætt fjármálafyrirtæki í eigu Íslandsbanka hf. Fagleg vinnubrögð og framúrskarandi árangur eru leiðarljós félagsins. Nánari upplýsingar um félagið eru á heimasíðu þess, www.islandssjodir.is.
Íslandssjóðir leita að forstöðumanni skuldabréfastýringar. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni:
- Leiða stýringu á skuldabréfasjóðum
- Umsjón með daglegum viðskiptum
- Þátttaka í stefnumótun og vöruþróun
- Fjárfestingaráætlanir, greiningar og mat á fjárfestingatækifærum
- Kynningar fyrir söluaðila og fagfjárfesta
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Próf í verðbréfaviðskiptum
- Mikil reynsla af störfum á verðbréfamarkaði
- Góð þekking á skuldabréfamarkaði
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, sími 440 4593, haraldur@islandssjodir.is.
Á mannauðssviði veitir Sigrún Ólafsdóttir upplýsingar, sími 440 4172, sigrun.olafs@islandsbanki.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar inn ásamt feriskrá. Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar nk.