Valmynd

Forstöðumaður skuldabréfastýringar Íslandssjóða

Íslandssjóðir hf. er leiðandi félag á sviði sjóðastýringar og annast rekstur og stýringu verðbréfasjóða, fjarfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða. Félagið er sjálfstætt fjármálafyrirtæki í eigu Íslandsbanka hf. Fagleg vinnubrögð og framúrskarandi árangur eru leiðarljós félagsins. Nánari upplýsingar um félagið eru á heimasíðu þess, www.islandssjodir.is.

Íslandssjóðir leita að forstöðumanni skuldabréfastýringar. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra.

Helstu verkefni:

  • Leiða stýringu á skuldabréfasjóðum
  • Umsjón með daglegum viðskiptum
  • Þátttaka í stefnumótun og vöruþróun
  • Fjárfestingaráætlanir, greiningar og mat á fjárfestingatækifærum
  • Kynningar fyrir söluaðila og fagfjárfesta

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Próf í verðbréfaviðskiptum
  • Mikil reynsla af störfum á verðbréfamarkaði
  • Góð þekking á skuldabréfamarkaði
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, sími 440 4593, haraldur@islandssjodir.is.
Á mannauðssviði veitir Sigrún Ólafsdóttir upplýsingar, sími 440 4172, sigrun.olafs@islandsbanki.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar inn ásamt feriskrá. Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar nk.