Íslandssjóðir hf. er leiðandi félag á sviði sjóðastýringar og annast rekstur og stýringu verðbréfasjóða, fjarfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða. Félagið er sjálfstætt fjármálafyrirtæki í eigu Íslandsbanka hf. Fagleg vinnubrögð og framúrskarandi árangur eru leiðarljós félagsins. Nánari upplýsingar um félagið eru á heimasíðu þess, www.islandssjodir.is.
Íslandssjóðir leita að öflugum lögfræðingi til starfa. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni:
- Samninga- og skjalagerð
- Ráðgjöf við stofnun og rekstur sjóða
- Samskipti við helstu samstarfsaðila og eftirlitsaðila
- Þátttaka í innra eftirliti með starfsemi félagsins
- Innleiðing á nýjum reglum, sérstaklega UCITS
Hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögum
- Reynsla af lögfræðistörfum á fjármálamarkaði
- Þekking á íslenskri og evrópskri sjóðalöggjöf er mikill kostur
- Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, sími 440 4593, haraldur@islandssjodir.is.
Á mannauðssviði veitir Sigrún Ólafsdóttir upplýsingar, sími 440 4172, sigrun.olafs@islandsbanki.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar inn ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar nk.