Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2015.
Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2015
- Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
- Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2015 er 138 m.kr. samanborið við 25 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
- Rekstrargjöld námu 556 m.kr. samanborið við 576 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og lækkuðu um 3,5%.
- Hreinar rekstrartekjur námu 728 m.kr. samanborið við 607 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður, hækkuðu um 19,9%.
- Eigið fé 30. júní 2015 nam 2.001 m.kr. en var 2.035 m.kr. í ársbyrjun.
- Heildareignir félagsins 30. júní 2015 námu 2.569 m.kr. en voru 2.600 m.kr. í árslok 2014.
- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 57,0% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
- Í lok júní 2015 voru 23 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 122.527 milljónum króna samanborið við 114.130 m.kr. í lok árs 2014. Þar af eru 12 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 86.651 milljónir króna og 11 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 35.876 milljónir króna.
- Fjárfestingarsjóðurinn Einkasöfn ÍS var stofnaður í upphafi árs 2015 en sjóðurinn starfar í fimm sjóðsdeildum (A-E). Sjóðirnir eru blandaðir og fjárfesta bæði í öðrum sjóðum og stökum verðbréfum.
- Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Ernst & Young ehf. en við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2015.
- Á fyrri hluta ársins störfuðu að meðaltali 13,3 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.
Lykiltölur í m.kr. 6 mán. 2015 6 mán. 2014
6 mán. 2015 | 6 mán. 2014 | |
Hreinar rekstrartekjur | 728 | 607 |
Rekstrargjöld | 556 | 576 |
Hagnaður fyrir skatta | 172 | 31 |
Hagnaður eftir skatta | 138 | 25 |
Eigið fé | 2001 | 1832 |
Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins
- Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 3.562 m.kr. samanborið við 474 m.kr. tap fyrstu sex mánuði ársins 2014.
- Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða nam 86.651 m.kr. samanborið við 88.190 m.kr. í árslok 2014.
Lykiltölur í m.kr.
Veltusafn | Ríkissafn | Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 | Löng ríkissk.br. - Sjóður 7 | |
Hagnaður (tap) tímabilsins |
89 | 57 | 1007 | 2219 |
Hrein eign í lok tímabilsins |
3526 | 15025 | 25571 | 36693 |
Úrvalsvísitala - Sjóður 6 | Heimssafn - Sjóður 12 | Eignasafn | Eignasafn - Ríki og sjóðir | |
Hagnaður (tap) tímabilsins |
64 | 71 | 70 | 29 |
Hrein eign í lok tímabilsins |
490 | 1.099 | 1.133 | 680 |
Sjóður 1A | Sjóður 1B | Sjóður 11A | Sjóður 11B | Samtals verðbréfasjóðir |
|
Hagnaður (tap) tímabilsins |
-13 | -20 | -4 | -7 | 3.562 |
Hrein eign í lok tímabilsins |
825 | 1.278 | 116 | 215 | 86.651 |
Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins
- Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini fyrstu sex mánuðina nam 1.934 m.kr. samanborið við 327 m.kr. tap fyrstu 6 mánuðina 2014.
- Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða nam 35.876 m.kr. samanborið við 25.940 m.kr. í árslok 2014.
Lykiltölur í m.kr.
Lausafjársafn | Skuldabréfasafn | Óverðtryggður sjóður ÍS |
Fókus - vextir | IS Hlutabréfa- sjóðurinn |
|
Hagnaður (tap) tímabilsins |
240 | 137 | -60 | 98 | 1.477 |
Hrein eign í lok tímabilsins |
12.095 | 4.154 | 3.116 | 3.807 | 10.902 |
Einkasafn A | Einkasafn B | Einkasafn C | Einkasafn D | Einkasafn E | |
Hagnaður (tap) tímabilsins |
1 | 3 | 30 | 3 | 4 |
Hrein eign í lok tímabilsins |
50 | 216 | 1.252 | 186 | 93 |
Fyrirtækja- sjóðurinn |
Samtals fjáfestingarsjóðir |
|
Hagnaður (tap) tímabilsins |
1 | 1.934 |
Hrein eign í lok tímabilsins |
5 | 35.876 |
Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi, 4. hæð og hjá VÍB, Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, einnig á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is frá og með 27. ágúst 2015.
Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4593