Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2015.
Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2015
- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikninga verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
- Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2015 nam 532 m.kr. samanborið við 228 m.kr. árið 2014.
- Hreinar rekstrartekjur námu 1.587 m.kr. samanborið við 1.408 m.kr. árið áður.
- Rekstrargjöld námu 922 m.kr. samanborið við 1.123 m.kr. árið áður.
- Heildareignir félagsins námu 2.994 m.kr. í árslok 2015 en voru 2.600 m.kr. í ársbyrjun.
- Eigið fé í árslok 2015 nam 2.395 m.kr. en var 2.035 m.kr. í ársbyrjun.
- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 69,2% í árslok 2015 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
- Í lok desember 2015 voru 25 sjóðir í rekstri og slitum hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 126.628 milljónum króna. Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 11.713 m.kr. árið 2015 samanborið við hagnað uppá 3.320 m.kr. árið 2014.
- Fjárfestingarsjóðurinn IS Einkasöfn var stofnaður í upphafi árs 2015 en sjóðurinn starfar í fimm sjóðsdeildum (A-E). Sjóðsdeildirnar eru blandaðar og fjárfesta bæði í öðrum sjóðum og stökum verðbréfum. Í desember voru stofnaðir tveir fjárfestingarsjóðir til viðbótar; IS Sértryggður sjóður og IS Sértryggður VTR sjóður.
- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Ernst & Young ehf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2015.
- Í lok desember 2015 störfuðu 11 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.
Lykiltölur í m.kr.
2015 | 2014 | |
---|---|---|
Hreinar rekstrartekjur | 1.587 | 1.408 |
Rekstrargjöld | 922 | 1.123 |
Hagnaður fyrir skatta |
665 | 285 |
Hagnaður eftir skatta | 532 | 228 |
Eigið fé 31.12. | 2.395 | 2.035 |
Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða árið 2015
- Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2015 nam 6.006 m.kr., samanborið við 2.329 m.kr. árið 2014.
- Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða í árslok 2015 nam 83.528 m.kr. samanborið við 88.190 m.kr. árið 2014.
Lykiltölur í m.kr.
IS Veltusafn | Ríkissafn | IS Meðallöng ríkisskuldabréf - Sjóður 5 |
IS Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7 |
|
---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) ársins | 173 | 663 | 1.648 | 2.775 |
Hrein eign í árslok | 2.769 | 15.519 | 24.526 | 36.395 |
IS Úrvalsvísitölu- sjóðurinn |
IS Heimssafn | IS Eignasafn | IS Eignasafn - Ríki og sjóðir |
|
---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) ársins | 190 | 8 | 145 | 46 |
Hrein eign í árslok | 715 | 969 | 1.116 | 612 |
Sjóður 1A | Sjóður 1B | Sjóður 11A | Sjóður 11B | Samtals verðbréfasjóðir |
|
---|---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) ársins | 132 | 204 | 7 | 14 | 6.006 |
Hrein eign í árslok | 348 | 539 | 7 | 13 | 83.528 |
Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða árið 2015
- Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2015 nam 5.707 m.kr. samanborið við 991 m.kr. árið 2014.
- Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða í árslok 2015 nam 43.100 m.kr. samanborið við 25.940 m.kr. árið 2014.
Lykiltölur í m.kr.
IS Lausafjársafn | Skuldabréfasafn | IS Óverðtryggður sjóður | IS Sértryggður sjóður | IS Sértryggður VTR sjóður | |
---|---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) ársins | 605 | 270 | 185 | 2 | 1 |
Hrein eign í árslok | 13.534 | 4.208 | 2.760 | 439 | 785 |
Fókus - vextir | IS Hlutabréfa- sjóðurinn |
IS Einkasafn A | IS Einkasafn B | IS Einkasafn C | |
---|---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) ársins | 226 | 4.179 | 3 | 16 | 156 |
Hrein eign í árslok | 3.855 | 13.166 | 174 | 629 | 2.476 |
IS Einkasafn D | IS Einkasafn E | Fyrirtækja- sjóðurinn |
Samtals fjárfestingar- sjóðir |
|
---|---|---|---|---|
Hagnaður (tap) ársins | 37 | 23 | 4 | 5.707 |
Hrein eign í árslok | 779 | 288 | 5 | 43.100 |
Ársreikningur félagsins er aðgengilegur á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is og mun jafnframt liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi 2 og hjá VÍB, Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, frá og með 7. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440 4593.