Íslandssjóðir óska eftir umsóknum í starf framkvæmdastjóra.
Íslandssjóðir hf. er leiðandi félag á sviði sjóðastýringar og annast rekstur og stýringu verðbréfasjóða, fjarfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða. Félagið er sjálfstætt fjármálafyrirtæki í eigu Íslandsbanka hf. Nánari upplýsingar um félagið eru á heimasíðu þess, www.islandssjodir.is.
Íslandssjóðir voru á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki árið 2015, fimmta árið í röð samkvæmt ítarlegu styrk- og stöðuleikamati Creditinfo og er markmið starfsmanna og stjórnar að vera í fremstu röð.
Framkvæmdastjóri Íslandssjóða mun þurfa að standast hæfismat Fjármálaeftirlitsins.
Umsóknarfrestur er til og með 25. september
Upplýsingar og umsókn capacent.is
Starfssvið:
- Dagleg stjórnun og rekstur félagsins.
- Stefnumótun, áætlanagerð og markmiðasetning ásamt eftirfylgni.
- Uppbygging sérhæfðra fjárfestinga.
- Efling viðskiptaþróunar og aukning markaðshlutdeildar.
- Ábyrgð á vönduðum vinnubrögðum á öllum sviðum í starfsemi félagsins.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Rekstrar- og stjórnunarreynsla.
- Áhugi á að taka þátt í breytingum.
- Stefnumiðuð sýn og leiðtogafærni.
- Góð þekking á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.