Kjartan Smári Höskuldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða. Kjartan Smári hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, en undanfarin níu ár hefur hann starfað sem forstöðumaður hjá VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, þar sem hann hefur leitt fagfjárfestasvið, lífeyrissvið og fjármögnun sérhæfðra fjárfestinga. Kjartan Smári er með MA gráðu í alþjóðaviðskiptum frá UAB háskólanum í Barcelona og BA gráðu í Sálfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Íslandssjóðir hf. er sérhæft félag á sviði eignastýringar og sjóðastýringar. Félagið var stofnað árið 1994 og starfrækir breitt úrval verðbréfa- og fjárfestingasjóða. Fimmtán sérfræðingar í eignastýringu starfa hjá Íslandssjóðum og um 100 milljarðar króna eru ávaxtaðir í sjóðum félagsins auk sérhæfðra fjárfestinga. Aukin áhersla verður framvegis lögð á sérhæfðar fjárfestingar, svo sem fasteignaverkefni, lánasjóði og framtakssjóði og eru þessar breytingar liður í því.
„Íslandssjóðir eru í sóknarhug enda eru mikil tækifæri framundan á eignastýringarmarkaði, bæði þegar horft er til sérhæfðra fjárfestinga og almennra verðbréfasjóða. Það er því afar spennandi verkefni að leiða þau öflugu eignastýringarteymi sem starfa hjá Íslandssjóðum í að þróa spennandi og góða fjárfestingarkosti fyrir viðskiptavini félagsins sem eru bæði almennir sparifjáreigendur og fagfjárfestar. Ráðning öflugra og reynslumikilla sérfræðinga inn í eignastýringarteymi Íslandssjóða eru mikilvægur liður í þessari vegferð.“
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða.
Jóhannes Hauksson hefur tekið við starfi forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum og er staðgengill framkvæmdastjóra. Jóhannes er með langa reynslu af fjárfestingum, fjármögnun fyrirtækja, verkefnafjármögnun og fjárhagslegri endurskipulagningu. Jóhannes er framkvæmdastjóri Akurs fjárfestinga slhf., framtakssjóðs í stýringu Íslandssjóða. Áður var Jóhannes forstöðumaður Fyrirtækjalausna, deildar sem annaðist fjárhagslega endurskipulagningu í Íslandsbanka árin 2010-2013.
Jónas Þór Jónasson hefur verið ráðinn sjóðsstjóri í sérhæfðum fjárfestingum Íslandssjóða. Jónas Þór er með yfirgripsmikla reynslu af fasteignafjárfestingum, fasteignaþróun og uppbyggingu allt frá árinu 1999 þegar Jónas hóf störf hjá Þyrpingu (nú Reitir) og síðar hjá Klasa hf. Meðal fasteigna- og þróunarverkefna sem Jónas hefur unnið að má nefna Skuggahverfi 101, Kringluna, Norðurbakkann í Hafnarfirði, miðbæ Garðabæjar og Litlatún verslunarhverfi, Kauptún, Hotel Reykjavík Centrum, Hilton Canopy, Fontana Spa, Hádegismóa og Höfðahverfi í Elliðaárvogi.
Hrönn Greipsdóttir hefur verið ráðin sjóðsstjóri í sérhæfðum fjárfestingum Íslandssjóða. Hrönn mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarfélagsins Eldeyjar TLH hf. sem fjárfestir í ferðaþjónustu og stýrt er af Íslandssjóðum. Hrönn hefur yfirgripsmikla reynslu á sviði ferðaþjónustu og fjármála en hún var m.a. framkvæmdastjóri Hótel Sögu ehf. og sat í stjórn SAF um árabil.
Haukur Skúlason hefur verið ráðinn sjóðsstjóri í sérhæfðum fjárfestingum Íslandssjóða. Haukur hefur viðamikla reynslu af innlendum fjármálamarkaði og fasteignafjárfestingum en áður en Haukur gekk til liðs við VÍB fyrr á þessu ári starfaði hann í fimm ár við umsýslu fjárfestingaeigna Tryggingamiðstöðvarinnar. Haukur settist í stjórn fasteignafélagsins FAST-1 við stofnun þess árið 2012 og gegnir nú stjórnarformennsku í félaginu, en FAST-1 er fasteignafélag í stýringu Íslandssjóða með rúmlega 22 milljarða í heildareignir.
Íslandssjóðir hf. er sjálfstætt dótturfélag Íslandsbanka. Stjórnarformaður félagsins er Tanya Zharov, lögfræðingur en aðrir stjórnarmenn eru Kristján Björgvinsson, löggiltur endurskoðandi, Bolli Héðinsson, háskólakennari og Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri.
Á myndinni eru: Jónas Þór Jónasson, Tanya Zharov, Kjartan Smári Höskuldsson, Hrönn Greipsdóttir, Jóhannes Hauksson og Haukur Skúlason.