Íslandssjóðir hf. högnuðust um 97 milljónir króna árið 2016 og námu hreinar rekstrartekjur 1.170 milljónum króna. Árið einkenndist af fjárfestingu í vöruþróun og breytingum hjá félaginu. Starfsmönnum í teymi sérhæfðra fjárfestinga var fjölgað úr tveimur í sex og fjöldi sérhæfðra fjárfestingarkosta í stýringu félagsins tvöfaldaðist á árinu. Félagið greiddi 1.054 milljónir til Íslandsbanka á árinu 2016 í formi þjónustugjalda og arðgreiðslu.
Íslandssjóðir hf. eru elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins og að fullu í eigu Íslandsbanka.
Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2016
- Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2016 nam 97 m.kr. samanborið við 532 m.kr. árið 2015, sem einkenndist af einskiptis tekjuliðum.
- Starfsmönnum félagsins fjölgaði úr 11 í 15 á árinu og teymi sérhæfðra fjárfestinga var stækkað úr tveimur starfsmönnum í sex.
- Félagið greiddi samtals 1.054 milljónir til Íslandsbanka á árinu 2016 í formi þjónustugjalda og arðgreiðslu.
- Hreinar rekstrartekjur námu 1.170 m.kr. samanborið við 1.587 m.kr. árið áður.
- Rekstrargjöld námu 1.049 m.kr. samanborið við 922 m.kr. árið áður.
- Heildareignir félagsins námu 2.453 m.kr. í árslok 2016 en voru 2.994 m.kr. í ársbyrjun.
- Eigið fé í árslok 2016 nam 2.094 m.kr. en var 2.395 m.kr. í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 63,9% í árslok 2016 en þetta hlutfall má lægst vera 8,0%.
- Í árslok 2016 voru 25 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 115.647 milljónum króna. Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 3.541 m.kr. árið 2016 samanborið við hagnað uppá 11.713 m.kr. árið 2015.
Lykiltölur í m.kr.
2016 | 2015 | |
---|---|---|
Hreinar rekstrartekjur | 1.170 | 1.587 |
Rekstrargjöld | 1.049 | 922 |
Hagnaður fyrir skatta |
121 | 665 |
Hagnaður eftir skatta | 97 | 532 |
Eigið fé 31.12. | 2.094 | 2.395 |
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða:
„Rekstur Íslandssjóða gekk vel á árinu og einkenndist af fjárfestingu í vöruþróun ásamt lægri ávöxtun af eignum félagsins en árið 2015, sem skilaði sér í hóflegum hagnaði á árinu. Mikil aukning varð á umsvifum Lausafjársafnsins sem tvöfaldaðist á árinu. Þrátt fyrir hóflega ávöxtun á verðbréfamörkuðum gekk stýring sjóða áfram vel og státa Íslandssjóðir af frábærum langtímaárangri í innlendum hlutabréfasjóðum sem og skuldabréfasjóðum og blönduðum sjóðum. Íslandssjóðir hafa allt frá stofnun félagsins árið 1994 haft skýra sérstöðu í stýringu ríkisskuldabréfasjóða. Það er afar ánægjulegt hvernig Íslandssjóðum tekst að halda því forskoti þrátt fyrir stóraukna samkeppni undanfarin ár. “
Ársreikningur félagsins er aðgengilegur á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is.
Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri, í síma 844 2950.