Fimmtudaginn 27. apríl var framkvæmd útgreiðsla úr Sjóðum 1A, 1B, 11A, 11B og Fyrirtækjasjóðnum sem eru í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Útgreiðsluhlutföll m.v. eignastöðu sjóðanna 27. apríl má sjá í eftirfarandi töflu.
|
1A |
11A |
1B |
11B |
Fyrirtækjasjóðurinn |
Útgreiðsluhlutföll |
60% |
58% |
60% |
58% |
38% |
Um er að ræða tólftu útgreiðsluna í sjóðum 1A og 11A og fjórtándu útgreiðsluna í sjóðum 1B og 11B fyrir þá sem völdu þá leið í janúar 2009. Þeir sem völdu leið 1B og 11B í september 2009 eru að fá þrettándu útgreiðsluna. Sjóðfélagar í Fyrirtækjasjóði Byr eru að fá sína tíundu útgreiðslu.
Útgreiðslan verður lögð inn á bankareikninga sjóðfélaga.
Vegna útgreiðslunnar bjóðum við sjóðfélögum í ofangreindum sjóðum að ávaxta sparifé sitt í sjóðum Íslandssjóða með 50% afslætti af upphafskostnaði. Tilboð þetta gildir til og með 31. maí nk.
Við hvetjum sjóðfélaga til að hafa samband við ráðgjafa VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka í síma 440 4900 eða með tölvupósti á vib@vib.is.