Valmynd

Útgreiðsla úr sjóðum 1 og 11 ásamt Fyrirtækjasjóðnum

Fimmtudaginn 27. apríl var framkvæmd útgreiðsla úr Sjóðum 1A, 1B, 11A, 11B og Fyrirtækjasjóðnum sem eru í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Útgreiðsluhlutföll m.v. eignastöðu sjóðanna 27. apríl má sjá í eftirfarandi töflu.

 

1A

11A

1B

11B

Fyrirtækjasjóðurinn

Útgreiðsluhlutföll

60%

58%

60%

58%

38%

Um er að ræða tólftu útgreiðsluna í sjóðum 1A og 11A og fjórtándu útgreiðsluna í sjóðum 1B og 11B fyrir þá sem völdu þá leið í janúar 2009. Þeir sem völdu leið 1B og 11B í september 2009 eru að fá þrettándu útgreiðsluna. Sjóðfélagar í Fyrirtækjasjóði Byr eru að fá sína tíundu útgreiðslu.

 

Útgreiðslan verður lögð inn á bankareikninga sjóðfélaga.

 

Vegna útgreiðslunnar bjóðum við sjóðfélögum í ofangreindum sjóðum að ávaxta sparifé sitt í sjóðum Íslandssjóða með 50% afslætti af upphafskostnaði. Tilboð þetta gildir til og með 31. maí nk.

 

Við hvetjum sjóðfélaga til að hafa samband við ráðgjafa VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka í síma 440 4900 eða með tölvupósti á vib@vib.is.