Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða, sem rennur til viðskiptavina Íslandssjóða í formi ávöxtunar, nam 5,3 milljörðum króna á árinu 2018. Ávöxtun sjóða félagsins var almennt góð á árinu og skiluðu allir skuldabréfasjóðir sem og blandaðir sjóðir í stýringu félagsins jákvæðri ávöxtun. Þá skilaði IS Sértryggð skuldabréf VTR bestu ávöxtun allra sértryggðra sjóða á landinu og fleiri sjóðir Íslandssjóða voru í efstu sætum í sínum flokki samkvæmt flokkun Keldunnar.
Íslandssjóðir hf. högnuðust um 278 milljónir króna árið 2018 og námu hreinar rekstrartekjur 1.465 milljónum króna. Á árinu var innleidd stefna um ábyrgar fjárfestingar og fyrsti græni skuldabréfasjóður landsins var kynntur til leiks. Þá lauk á árinu söluferli á öllu eignasafni fasteignafélagsins FAST-1 sem rekið er af Íslandssjóðum. Nú starfa hjá Íslandssjóðum 21 sérfræðingur í eignastýringu, tíu konur og ellefu karlar. Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum 266,5 milljarðar króna í árslok.
Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2018
- Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða í stýringu Íslandssjóða var 5.295 m.kr. samanborið við 6.684 m.kr. árið 2017. Alls eru sjóðirnir 27 talsins og nam hrein eign þeirra 148 milljörðum króna í árslok.
- Hagnaður Íslandssjóða hf. nam 278 m.kr. eftir skatta samanborið við 183 m.kr. árið 2017.
- Hreinar rekstrartekjur námu 1.465 m.kr. samanborið við 1.361 m.kr. árið áður.
- Rekstrargjöld námu 1.117 m.kr. samanborið við 1.125 m.kr. árið áður.
- Eigið fé í árslok 2018 nam 2.275 m.kr. en var 2.180 m.kr. í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 65,1% í árslok 2018 en má lægst vera 8% samkvæmt sömu lögum.
Lykiltölur úr rekstri, í milljónum króna
|
2018 |
2017 |
Breyting milli ára % |
Hreinar rekstrartekjur |
1.465 |
1.361 |
8% |
Rekstrargjöld |
1.117 |
1.125 |
-1% |
Hagnaður fyrir skatta |
348 |
229 |
52% |
Hagnaður eftir skatta |
278 |
183 |
52% |
Eigið fé í árslok |
2.275 |
2.180 |
4% |
Eignir í stýringu |
266.500 |
251.200 |
6% |
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða:
„Rekstur Íslandssjóða gekk vel á árinu 2018 sem einkenndist af síaukinni áherslu á ábyrgar fjárfestingar og þróun á nýjum fjárfestingarkostum tengdum samfélagsábyrgð. Við kynntum til leiks fyrsta græna skuldabréfasjóð landsins á árinu og hlaut sjóðurinn góðar viðtökur meðal sparifjáreigenda. Græni sjóðurinn hefur nú þegar fjárfest í spennandi skuldabréfaútgáfum á nýja íslenska græna markaðnum sem hefur byggst hraðar upp en flestir þorðu að vona. Ávöxtun sjóða var almennt góð og áhersla á eignadreifingu og verðtryggðar eignir skiluðu viðskiptavinum okkar ágætri ávöxtun í krefjandi markaðsaðstæðum.“
Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins og er dótturfélag Íslandsbanka. Ársreikningur félagsins er aðgengilegur á heimasíðu þess: www.islandssjodir.is.
Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri, í síma 844 2950.